20.12.2006 | 22:22
BNA
í dag sagði konan mín við mig að henni langað að búa í Bandaríkjunum. Ég hugsaði mig aðeins um áður en ég svaraði. Ég hefði svo sem ekkert á móti því að búa í BNA, fyrir utan að skoðanafrelsi og tjáningarfrelsi er eitthvað sem ég vil hafa þar sem ég bý, þar missa BNA punkta í mínum kladda.
Ég vil ekki búa í landi þar sem að einungis tveir stjórnmálaflokkar eru við lýði. Ég vil ekki búa í landi sem kallar sig vöggu og verndara lýðræðis en hleypir helst ekki mjög vinstri sinnuðu fólki inn í landið, ef fólkið kemst inn þá kemst það inn í skamman tíma. Ég vil ekki búa í landi sem fer um heiminn með hervaldi til að þröngva lýðræði upp á þjóðir sem eiga olíu en láta Afríkuríki og N-Kóreu í friði. Ég vil ekki búa í landi sem er marga daga að senda hjálparsveitir á stað í landinu sjálfu þegar náttúruhamfarir ganga yfir. Ég vil ekki búa í landi sem fer framhjá öllum alþjóðalögum um pyntingar. Ég vil ekki búa í landi þar sem forsetinn segist vera valin af Guði til og fer svo drepur saklaust fólk með því að varpa á það sprengjum úr mörg þúsund feta hæð. Ég vil ekki búa í landi eins og BNA.
Jæja, svona fór um sjóferð þá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)